Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2009

Loose cannon?

Er forsetinn að tala hér fyrir munn stjórnvalda eða er hann lausbeisluð fallbyssukúla? Það renna á mann tvær grímur yfir flestum fréttum þessa dagana - er stjórnleysið að verða algjört? Umsátur um Seðlabankann dag eftir dag - og við erum orðin að athlægi víða um heim. DO minnir helst orðið á Mugabe sem neitar að gefast upp. Fréttir berast frá hagfræðingum og öðrum fjármálagúrúum um að hér sé ýmist allt að falli komið eða að það sé nú orðum aukið.

Það er að koma í ljós mynd af samfélaginu sem er í hrópandi ósamræmi við niðurstöður alþjóðastofnana sem fyrir tveimur árum eða svo lýstu því yfir að Ísland væri allra landa best. Úr háum söðli að detta. 


mbl.is Þjóðverjar fái engar bætur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Yfirskilvitleg handvömm

Jæja - nú skil ég frá hverju nýjasta risa-smjörklípan á að dreifa athyglinni. Algjör leppalúðahegðun í hagstjórn þjóðarbúsins. Það skiptir engu máli hversu miklu moldviðri Sjálfstæðismenn á öllum vettvöngum eru að þyrla upp þessa dagana - þeim tekst ekki að firra sig ábyrgð á þeirri handvömm sem hefur komið okkur á þennan stað. Staðreyndin er sú að flokkurinn hefur talið sig vera hinn eina sem geti, kunni og eigi að stýra landinu og hér stöndum við nú. Með allt niðrum okkur hér heima og á alþjóðavettvangi.

Þetta er hárréttur tími að birta þessa skýrslu - á meðan DO er að reyna að búa til nornaveður ofsókna og persónulegs haturs allra gagnvart sér.

Þetta snýst ekki um DO - þetta snýst um yfirskilvitlega handvömm allra sem hefðu átt að grípa í taumana.   


mbl.is Veðjuðu á endurlífgun hagkerfisins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leiðindi dauðans

Er seðlabankastjóri númer eitt ekki að misskilja eitthvað - hann er ekki forsætisráðherra lengur. Það hefur enginn þorað að segja honum það þegar honum var komið fyrir í Seðlabankanum eins og gjarnan er gert þegar menn vilja ekki verða sendiherrar í einhverjum útlöndum.
En ég tek nú undir það sem Gunnar Smári sagði í Silfri Egils í morgun- er orðin hundleið á fréttum um manninn. Er ekki komið að því að víkja athyglinni að öðrum mikilvægari málum og lofa forsætisráðherranum að díla við þetta mál.

Fjárhagslega sjálfstæð - hah!

Það er mikið skrafað og rætt í útvarpi og sjónvarpi að vanda. Komandi kosningar, óþekkir seðlabankastjórar, ný bráðabirgðastjórn undir stjórn samkynhneigðar konu. En erum við að forðast að horfa á það sem er of ógnvænlegt - atvinnuleysissjóður tæmdur í haust, skuldir okkar svo stjarnfræðilega háar að það er engin leið að við getur greitt þær, nokkurntíma. Hvaða framtíðarsýn er það? 

Ef við horfumst í augu við þetta þá fallast hendur - vonleysið grípur um sig - vanmátturinn læðist inn. Ísland hefur verið fjárhagslega sjálfstætt í fjögur ár, það er allt og sumt. Þegar bandaríski herinn fór þá hvarf síðasti speninn sem við höfum haft til að liggja á. Um það leiti varð til sú áætlun að verða bankaveldi á heimsvísu, hvaða stórmennskubrjálæðingi datt það í hug? Við hreinlega kunnum ekki að sjá okkur farborða ein og óstudd, norðmenn hika við að taka okkur að sér - skiljanlega - ESB er nægilega stöndugt til að bjóða okkur inn. En við höfum ekki sýnt í verki að við kunnum fótum okkar fjárhagsleg forráð.

Við hræðumst að ganga inn í ESB vegna þess að það mun kosta okkur. Við verðum að láta af kröfum um að fá að ráða öllu sjálf - og fyrir fjögurra ára krakka er það óskemmtileg tilhugsun.       


Að skrifa söguna sjálfir

Mikið skelfing er óþolandi að verða vitni að því að menn velji að standa í vegi fyrir - leggja steina í götu- þeirrar vinnu sem nú fer fram víða í samfélaginu. Þá meina ég að lífsnauðsynlegar breytingar sem verða að eiga sér stað í Seðlabankanum til að hægt sé að hefja uppbyggingu á einhverskonar trausti á Seðlabankanum, bæði hérlendis og erlendis. Það má vera að það sé margra ára verk - en það verður að hefjast NÚNA.

Það er eins og stjórnendur Seðlabankans séu tilbúnir til að valda ómældum viðbótarskaða fremur en að segja af sér - og segja þar með að þeirra eigin persónulegi orðstýr sé mikilvægari en orðstýr þjóðarinnar.

En þeir eru fyrst og fremst að reyna að skrifa þann hluta íslandssögunnar sjálfir sem fjallar um þá.  


mbl.is Aldrei tekist að reka almennilegan seðlabanka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verðleikar í stað peninga

Hvers vegna er gengið út frá því sem gefnu að hæfileikafólk velji sér aðeins störf eftir því hversu mikla peninga það fær? Er upphæðin í launaumslaginu það eina sem gefur lífinu gildi? Það er nú búið að staðfesta það að lífshamingjan felst í tengslum við sína nánustu, í framlaginu sem fólk leggur að mörkum og mannorðinu sem maðurinn vinnur sér inn. Um það bil ein milljón umfram þarfir er viðmiðið - allt umfram það eykur ekki hamingjustuðulinn. Það er engin virðing falin í því að ætla fólki alltaf að það sé metið eftir peningaeign í stað verðleika.
mbl.is Gæti fælt frá hæfileikafólk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Loksins!

Langþráður draumur orðinn að veruleika. Þróunin hefur verið sú í mínu skattframtalslífi að fyrst gerði pabbi framtal allra í fjölskyldunni, síðan greiddi ég í mörg ár blóðpeninga fyrir að láta gera framtalið á skrifstofum úti í bæ. Neyðin gerði það síðan að verkum að ég lærði að gera þetta sjálf. Hef sennilega verið ein af þeim fyrstu sem notaði netframtals möguleikann sem hefur sífellt verið að þróast og nú er sem sagt þangað komið að það er ekkert að gera nema lesa yfir og ýta á senda takkann. Þessi framþróun gerir líf mitt svo miklu auðveldara.
mbl.is Þurfa bara að staðfesta framtalið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú nú - nýr hópur fórnarlamba

Það er verið að endurskipuleggja Seðlabankann og færa hann inn í nútímann- löngu tímabært. Það er verið að fá fagmenn í stað sjórnmálamanna - löngu tímabært. Ef þessi fráfarandi hópur bankamanna verður skilgreindur sem fórnarlömb eineltis þá er verið að gera lítið úr þeim sem raunverulega glíma við afleiðingar ofbeldis - sem einelti raunverulega er. 

Finnst nú einkennilegt ef Seðlabankastjórar kæra sig um þessa skilgreiningu og þar með draga úr alvarleika raunverulegs eineltis. 


mbl.is Yfirlýsingar jaðra við einelti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Meira um vaxandi óþol gagnvart nískum auðmönnum

Hér er meira efni um vaxandi óþol gagnvart skattaskjólum alls staðar. Kominn tími til, það svíður undan því óréttlæti sem við, sem borgum okkar skatta, finnum fyrir þegar upp kemst um þá nísku auðmanna að tíma ekki að greiða í sameiginlega sjóði. Fyrr má nú vera ná-nískan að víla ekki fyrir sér að nota alla þá þjónustu sem við borgum undir þau.

http://news.bbc.co.uk/panorama/hi/front_page/newsid_7858000/7858253.stm


Að afhjúpa skattaskjól auðmanna

Eigum við fjölmiðla sem geta gert svona hér? Í dag hefst greinarflokkur í dagblaðinu Guardian þar sem skattaskjól auðmanna eru afhjúpuð. Kannski væri grundvöllur fyrir samvinnu fréttamanna við blaðið þar sem íslenskir auðmenn hafa svo sterka innkomu í Bretlandi - kannski koma líka þeir íslensku við sögu í greinarflokknum.

  http://www.guardian.co.uk/business/2009/feb/02/tax-gap-avoidance


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband