Eftirherma eða greind
23.5.2008 | 11:21
Ja hérna - nú er ég hissa. Er að horfa á Tuma dýfa hörðu kexi í vatn til að bleyta það áður en hann étur það. Í gær gaf ég honum soðin hrísgrjón sem voru greinilega vel þegin, í morgun voru þau orðin þurr og hann fór með þau í vatnsskálina til að bleyta þau. Er að velta því fyrir mér hvar hann lærði þetta eða hvort hann fann upp á þessu sjálfur. Ég geri það stundum að bleyta smá bita af eldhúsrúllupappír og hann sýgur vatnið úr pappírnum, kannski þróaðist hugmyndin upp úr því. Er hann svona frumlegur eða er hann að herma eftir? Hann er alla vega óskaplega uppátækjasamur og snöggur. Hann er strax búinn að átta sig á að ég vil ekki að hann pilli takkana af lyklaborðinu, nú er það mest spennandi hjá honum að komast að lyklaborðinu.
Athugasemdir
Mjög fyndið.....Þeir sem segja að dýr hafi ekki sál eru alveg í ruglinu sko. Annars gerir mús þetta við matinn sinn stöðugt en ekki hinar kisurnar
Garún, 23.5.2008 kl. 11:57
Einu skynlausu skepnurnar sem ég hef hitt, ganga á tveim fótum, vængjalausar.
Haraldur Davíðsson, 23.5.2008 kl. 13:01
Dóra mín, ég er búin að vera í svo rosalegu bloggfríi, að ég hef ekki kíkt hér við í langan tíma. Takk fyrir að setja inn myndir, hef aldrei áður séð myndir af hinni einu sönnu Gloríu, Dedel og Gay vinkonum þínum. Merkilegt að sjá myndir af þessum merkilegu konum.
Alltaf gaman að heyra nýtt um vini þína hjá póstinum, nú svo virðist Tumi dásamleg vídd í tilverunni. Hvað segirðu 70-80 ára? Bara erfðagripur.
Góða helgi
Vinkona þín
Álfhóll, 23.5.2008 kl. 18:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.