Feður og synir

Nú er verið að hvetja mig til að kjósa í stjórn VR. Þegar ég fór inn á vefinn þar kemur í ljós að 3 karlar eru í boði til formanns og 7 karlar í stjórnina. Ekki konu að sjá neins staðar. Eftir yfirferðina um lífeyrissjóðina hjá gestinum í Silfri Egils í morgun þá er ég hrædd um að það verði lítið eftir í sjóðnum þegar ég þarf á honum að halda. Búin að greiða í sjóðinn í öll þessi ár. Hef ekki lyst á að kjósa.

Þetta er eins og í kirkjunni. Faðir og sonur eru heilagir. Ekki finn ég mig í þeirri stofnun heldur.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hilmar Gunnlaugsson

Það er leitt ef þetta er afstaða Vinstri Grænna til kynjakvótans Halldóra mín.

Hilmar Gunnlaugsson, 8.3.2009 kl. 22:40

2 identicon

sæl Dóra mín,

hjartans þakkir fyrir góða grein í blaðinu í morgun. Mikilvægt að benda á þennan þátt. 

vona að þú sért búin að ná heilsu.

góða helgi

Día

ps. flott mynd af þér í blaðinu.

diana (IP-tala skráð) 14.3.2009 kl. 12:18

3 Smámynd: Álfhóll

Sammála síðustu pennum, góð Dóra, góð! En varðandi VR - þá held ég að verkalýðshreyfinguna þurfi að  endurhugsa rækilega. Í VR eru fæstir  á  töxtum og kjósa því  ekki t il þess að láta VR berjast fyrir  sig, heldur vegna réttinda ýmiskonar. Konur virðast gjörsamlega máttlausar í þessum heimi og mér finnst það ekki síður  okkar að taka yfir þarna

Álfhóll, 15.3.2009 kl. 08:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband