Hætta að borga

Þessi umræða er komin af stað, að hætta að borga af lánum. Skiljanlegt. Enda sé ég ekki af hverju það er ekki hægt að klippa þessar upphæðir niður, þetta er hvort eð er bara tölur á blaði eða tölur inni í tölvum réttara sagt. Einu sinni var hægt að klippa nokkur núll aftan af krónunni og það gerðist ekkert nema að launin mín voru 90.000 kr. einn daginn og 9.000 kr. þann næsta (ef ég man rétt). Og allar matvörur kostuðu einhverja aura.

En hann kisi minn er allur. Var svæfður, enda aðframkominn af nýrnabilun. Kvaddur með þökkum fyrir góða samveru í 14 ár.

Flosi 2

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Baldur Gautur Baldursson

Samhryggist með köttinn.  Þeir verða vissulega hluti af fjölskyldunni þessir loðnu vinir okkar.    Bestu kveðjur, b

Baldur Gautur Baldursson, 3.12.2008 kl. 16:32

2 Smámynd: Halldóra Halldórsdóttir

Takk fyrir kveðjuna. Nú er ég í fyrsta sinn á ævinni með kattarlaust heimili.

Halldóra Halldórsdóttir, 3.12.2008 kl. 16:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband