Allur sá fjöldi kvenna...

Mér er ofarlega í huga allur sá fjöldi kvenna sem þessa dagana halda bönkunum gangandi. Hundruðir kvenna starfa við það að halda battaríinu gangandi og afgreiða reitt og hrætt fólk. Þær fá yfir sig dónaskap og ásakanir sem þær eiga á engan hátt skilið. Þetta eru ekki þeir bankastarfsmenn sem komu okkur á kaldan klakann - þær eru ekki með ofurlaunin. Þær vinna nú langan vinnudag við að greiða úr óreiðunni sem kapparnir komu landinu í - og þær fá ekki neinar sérstakar þakkir fyrir frá eigendum eða stjórnendum bankanna.  

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband