Bíddu við...

Er ekki nýlega búið að flagga alþóðlegri skýrslu þess efnis að hér á landi sé einna minnst um spillingu á byggðu bóli?  Nú heyrist þetta orð sífellt oftar um þá görninga sem ganga yfir okkur. Með hverjum deginum er vonlausara að gera sér grein fyrir því hvernig raunveruleikinn er. Það er einkennilegt að upplifa þegar sýndarveruleikinn sem okkur hefur verið gert að búa í hrynur saman á einum mánuði eða svo.

Fyrstu merkin um það sem koma skal kom inn um lúguna í dag - nú tilkynnir SPRON mér að frá og með 14 nóv. falli yfirdráttarheimildin niður. Nú er raunveruleikinn sem sagt að skella á.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband