Fuglasaga

Tumi flaug af búrinu sínu og á öxlina á mér þar sem ég sit við tölvuna- ég veit ekki hvort okkar var meira hissa. Sem betur fer var Flosi úti - ég þarf greinilega að ráðgera útivistartíma þeirra beggja vandlega. Tumi vill ekki hendur nálægt sér - hefur sennilega verið hvekktur einhvernveginn - en hann er greinilega minna hræddur við andlit og aðra líkamsparta því að hann reyndi að finna leið til að skríða upp á inniskóna og upp eftir gallabuxunum þegar hann flaug af stað í annað sinn og lenti á gólfinu. Síðan tókst honum að fljúga upp á búrið sjálfum. 

Hann flaug líka af búrinu um helgina og brotlenti þá í tröppunum - Flosi vaknaði og stökk upp á augabragði og ég rétt náði að grípa hann og skella honum út á svalir áður en tíðindin yrðu sorgleg. Þá mátti ég ekki rétta Tuma höndina - en hann flaug upp á öxlina til að fá far á búrið. 

 Nú er ég að reyna að lokka hann inn í búrið til að geta hleypt mjálmandi ketti inn. En Tumi er fljótur að læra - mér tókst að plata hann inn í búrið í gær með því að setja eplabita inn í búrið - nú prófaði ég þetta ráð aftur en hann er að sjá við þessu hjá mér. Situr upp á búrinu sem fastast og er keikur. Hann er óskaplega glysgjarn og er heillaður af gleraugunum mínum og hálsmeni. Mér heyrist hann vera að æfa sig í að segja "halló", og svo flautar hann bara mjög melódískt.

Nú féll hann fyrir ávextinum og ég gat lokað búrinu - í því kom Flosi inn um gluggann grunlaus um fjaðrafokið sem var í gangi. Þetta er æsispennandi líf.

 

I like pigs. Dogs look up to us. Cats look down on us. Pigs treat us as equals.

Sir Winston Churchill (1874 - 1965)   


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Álfhóll

Dóra, rosalega er þetta  spennandi.  Hann Harry minn sem ég átti í nokkur ár í Noregi vildi ekki heldur hendur.  Ég brá  á það ráð að vefja dúk utan um hendina  á mér og þá  þáði hann að setjast á  dúkinn.  Dætur  mínar sem aldrei hafa metið móður  sína sem skyldi, fyrirvörðu sig þegar ég gekk um með fuglinn á  hekluðum dúknum, en það virkaði!  Mæli með því að sveipa hendina á þér og athuga hvað hann gerir.  Gj

Álfhóll, 1.4.2008 kl. 22:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband