Flokkurinn og framhjáhaldið
30.8.2009 | 11:11
Sjálfstæðisflokkurinn sýnir sinn rétta lit - hann fórnar þjóðarhagsmunum fyrir flokkshagsmuni, rétt eins og gulldrengirnir fórnuðu þjóð sinni fyrir eigin hagsmuni. Eftir að gefa í skin að gæti nást breið samstaða um fyrirvarana á þingi í þeim tilgangi að ná sínum fyrirvörum í gegn - þá tekur flokkurinn þá afstöðu að svíkja lit á síðustu metrunum til að koma í veg fyrir innri klofning, sennilega.
Það sannast aftur að trúnaður sjálfstæðismanna er við flokkinn - ekki þjóðina. Flokkurinn fór út í smá-framhjáhald með stjórnarflokkunum og lét viðhaldið halda að hann ætlaði að skilja við sína. Þannig fékk hann fram vilja sínum - en vissi alltaf að framtíðarhagsmunirnir væru fólgnir í að fara aftur heim. Þetta var áreiðanlega þaulhugsuð taktík eins og oft er hjá hardcore framhjáhöldurum.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Það var sniðug athugasemd hjá þér um að það sé heilsufarsmál að fá að hafa svolitla stjórn sjálfur á eigin lífi.
Þess vegna skil ég bara alls ekki að þú getir talað eins og þú gerir um þá fáeinu sem ættu vera helstu málsvarar þess í pólitík. Þú hljómar eins og ágætis sjálfstæðiskona ef þú hugsar málið aðeins betur!! :)
En heldur framhjá til vinstri... Huttetu!!
jonaskeri (IP-tala skráð) 30.8.2009 kl. 11:45
Að vera sjáfstæð er heilsufarsmál - að standa í framhjáhaldi er eitthvað annað.
Halldóra Halldórsdóttir, 30.8.2009 kl. 12:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.