Fagnaðarefni
3.8.2009 | 12:58
Það er náttúrulega gríðarlega mikilvægt að karlar geti nálgast stinningarlyf á sem ódýrastan og aðgengilegastan hátt og að lyfjafyrirtæki fái að græða mikið á því. Linur limur er tákn um hvað... að heimurinn sé að farast - að karlar séu að missa völdin? Alla vega má engan gruna að karlmennskutáknið flaggi bara í hálfa stöng - þá kæmist sú skoðun á kreik að þeir gætu ekki stjórnað heiminum, fyrirtækjunum, herjunum. Rámar í fréttir um að Berlusconi á Ítalíu sé talinn eiga við risvandamál að stríða - þar er kannski komin skýringin á því hversu mikla áherslu maðurinn leggur á "karlmennsku" ímynd sína á kostnað þess að stýra landinu á réttlátan og skynsamlegan hátt.
Á meðan lyfjaframleiðendur eru með hugann við budduna og þar af leiðandi við holdlegt ris karla eru gríðarlega mörg heilbrigðisvandamál sem bíða þess að þeir tími að eyða peningum í að sinna þeim.
Samheitalyf Viagra á markað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Er ekki samheitið yfir þessi lyf Uppstúfur?
Burkni (IP-tala skráð) 5.8.2009 kl. 08:55
Nákvæmlega! Heimurinn ferst ef standpínuprósentan fer fyrir neðan 75 prósent. Hef sjálf miklar áhyggjur af þessu!
Garún, 17.8.2009 kl. 10:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.