Ergilegt
20.6.2008 | 15:51
Get ekki orða bundist ég er svo pirruð. Ég verð að fá mér nýjan ísskáp - það kostar næstum eins mikið að gera við þann gamla eins og að fá nýjan. Nú nú - sá gamli var fínn því að hann var með frystihólfið neðst og aðgengi að kælihlutanum var gott. Nú bregður svo við að öll tækin sem ég hef náð að skoða eru með frystihólfin efst - þar með fer aðgengilegasti hluti skápsins fyrir lítið því að frystihólfið er sjaldnast notað. Þegar ég spurði starfsmenn hvernig stæði á þessu var fátt um svör - einn hafði þó orð á því sem mér finnst augljóst. Hann hló og sagði; "konurnar segja að það sé vegna þess að karlar hanna þessi tæki". Mér var ekki skemmt.
Athugasemdir
Dóra mín, er að ranka við mér eftir vikufrí og farin að lesa blogg, ekki blogga. Elska geðvonskuna þína- nú eru það sumsé ísskápar! Alveg sammála búðarmanninum, við eigum að hanna okkar eldhúsgræjur sjálfar. Óþolandi að vinnuaðstaða okkar beri vitni um að hönnuðir séu að hanna hluti sem þeir ætla ekki að nota sjálfir. Var að hanna eldhúsgarð, dásamlegan í réttri hæð. Getur verið að ég myndi hann einn daginn og bloggi um hann, nú eða sýni þér hann.
Vinkona þín.
Álfhóll, 21.6.2008 kl. 19:25
Gott að heyra í þér mín kæra. Endilega deila eldhúsgarðinum! Ekki vera nísk.
Halldóra Halldórsdóttir, 21.6.2008 kl. 19:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.