Vændi löglegt og þá væntanlega skattskylt
24.3.2007 | 20:30
Þótt alvarleikinn í vændismálum sé mikill þá er ekkert sem jafnast á við að afhjúpa vitleysisganginn með húmor. Þannig skil ég fréttina um karlinn sem vill kæra fjármálaráðherra fyrir að hagnast á vændi. Um að gera að láta á þetta reyna og sjá hvort þessi kæra kemst eitthvað lengra í réttarkerfinu en allar klámkærurnar. Það er allt í upplasusn og ruglingi í þessum málum - þess vegna er öll þessi umræða svo gagnleg. Kærurnar líka. Og húmorinn.
Athugasemdir
Það er stundum eins og kjarninn í sumum málum týnist algerlega í allri vitleysunni. Eins og með vændismálið, þá er verið að spá í skattlagningu og alls konar, þegar við ættum eingöngu að velta fyrir okkur hvort við séum í rauninni sátt við að leyfa kaup á manneskjum?
En er sammála þér Dóra að húmorinn þarf að vera í lagi, hann er bókstaflega lífsnauðsynlegur :)
Thelma Ásdísardóttir, 24.3.2007 kl. 20:35
bara rugl, engin samheldni í þessu hjá hinu opinbera.
SM, 24.3.2007 kl. 21:02
Já - það er um að gera að forðast að sjá hvað er raunverulega á ferðinni. Að gera manneskjuna að neysluvöru eins og hvað annað dót. Svo er líka alltaf jafn - athyglisvert að kastljósið beinist ekki að eftirspurninni. Það er svo óþægilegt.
Halldóra Halldórsdóttir, 24.3.2007 kl. 21:05
Ég er alveg sammála! Mér finnst þetta svo fáránlegt í allri þessari umræðu sem hefur verið undanfarið. Ríkistjórnin samþykkir þetta frumvarp nánast í skjóli nætur. Það allra lágúrulegasta sem ég hef séð af þessari annars lélegu ríkisstjórn. En, það er satt, þetta með karlinn, vændið og ríkið er eiginlega ekkert nema fyndið!
Ruth Ásdísardóttir, 26.3.2007 kl. 20:53
Elskulega samstarfskona mín, var að finna þig í bloggheimum.
Við gætum átt að hættu að hætta að tala saman, þó þú sért í næsta herbergi, þar sem þessi samskiptamáti er að taka yfir bara. Hélt þú skildir vinnuna eftir þegar þú ferð heim, eins og þú varst að lýsa fjálglega áðan í hádeginu. Bara bull, heldur áfram að velta þér upp úr málaflokknum utan vinnu líka.
Elska þig
Guðrún
Álfhóll, 29.3.2007 kl. 13:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.