Skil ekki eftirsjána
17.11.2008 | 21:16
Skil ekki þessa eftirsjá eftir formanni Framsóknarflokksins. Vona að hann sé fyrstur af mörgum sem taka pokann sinn. Les á bloggum hér að hann hafi verið svo skemmtilegur - en ég er ekki að greiða laun hans sem skemmtikrafts. Að það sé sjónarsviptir af honum - ég er ekki að greiða laun hans vegna útlitsins.
Það eru að renna upp nýjir tímar í þjóðlífinu - óhjákvæmilega. Og gamla flokkagengið verður að þekkja sinn vitjunartíma. Miklu frekar að kveðja með fullri reisn heldur en að flæmast á brott á hröðum flótta.
Athugasemdir
Ekki veit ég hvað það er sem hann saknar. Er það spillingin? Jú sennielga, hann hefur orðið góðu vanur þarna mitt í hringiðu spillingar og hóglífis!
Baldur Gautur Baldursson, 18.11.2008 kl. 16:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.