Án fyrirsagnar

 Þröng á þingi

Við systurnar komum stuttlega við á sýningu íslenskra hönnuða í Ráðhúsinu í gær á leið í afmæli og fundum þar skemmtilega gjöf. Alltaf finnst mér gaman að sjá allt það fallega sem er til sölu og sýnis eftir  íslenska hönnuði. Troðfullt af fólki. Þar fann ég líka tösku sem mig langaði í - og fékk mér - úr fiskiroði. Strákarfan sem ég hef notað síðan ég fékk mér hana á Barbados í vor er eiginlega búin að sinna sínu og breytist nú í sundhallartösku.

     Don't go around saying the world owes you a living. The world owes you nothing. It was here first.

Mark Twain


Haustið

HaustlitirFallegur dagur í borginni í dag og ég fór út með myndavélina. Nú eru álftirnar og gæsirnar komnar í bæinn - alltaf skemmtilegt, nú er bara að bíða eftir Krumma en hann dregur það að koma úr sveitasælunni og á mölina langt fram á vetur. Hann er þó sá sem ég bíð spenntust eftir. Kynntist honum fyrst þegar ég var í sveit í Þorskafirðinum - þá tókst honum alltaf að ergja hundinn á bænum. Hundurinn lét sér aldri segjast - og lærði aldrei að láta Krumma ekki æsa sig upp. Hann gelti sig hásann og hljóp sig í spreng aftur og aftur. Krummi hafði augljóslega gaman af þessum leik, ekki var hægt að finna aðra skýringu á því athæfi hans að sitja á þúfu þar til hundurinn var alveg að ná honum, fljúga síðan yfir á þarnæstu þúfu krunkandi og þessu hélt hann áfram þangað til hann fékk leið á þessum leik. Kannski hafði hundurinn líka gaman að þessum leik - en ég held þó að hann hafi verið að sinna skyldustörfum en ekki að leika sér. Sveitahundar vita að þeir eiga mikilvægum verkum að sinna.

"Perfection is achieved, not when there is nothing left to add, but when there is nothing left to take away" Antoine de St. Exupery

"Reality is merely an illusion, albeit a very persistent one" Albert Einstein 1879-1955


Snillingar fyrri tíma

Rakst á síðu á netinu þar sem var samsafn af stuttum setningum sem snillingar fyrri ára og alda hafa látið út úr sér og einhver nútímasnillingur hefur safnað saman. Ég ætla að skjóta þeim hér inn af og til eftir því sem andinn kemur yfir mig. Nokkrir eru í sérlegu uppáhaldi hjá mér, Oskar Wilde, Bernhard Shaw, Einstein og Winston Churchill til dæmis. En einnig aðrir sem eru miklu eldri - um tvö þúsund ára gamlir.

Takið eftir að allt eru þetta karlar. Örfáar konur eru þó í hópnum. Enda voru konur fyrri tíma ekki endilega læsar eða skrifandi og engum fannst það þess virði að skrá hjá sér gullkornin þeirra.

"Some cause happiness wherever they go; others whenever they go".
Oscar Wilde

"The whole problem with the world is that fools and fanatics are always so certain of themselves, but wiser people so full of doubts".
Bertrand Russell


Bloggfærslur 7. október 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband