Árangur!

Af tómri tilviljun gekk ég fram á útberana í hverfinu í morgun með fangið fullt af Fréttablaðinu. Það var létt verk að benda þeim á miðana sem eru á póstkassanum mínum og frábiðja mér að fá Fréttablaðið. Þau urðu mjög undrandi á þessari sérvisku en ætla að láta það eftir mér. Hafa greinilega ekki tekið mark á þessum skilaboðum og miðum sem var búið að betrekkja póstkassann og útihurðina með. Nú er að sjá hversu lengi þau trúa því að blaðið sé ekki velkomið hér - halda sennilega að þessi vitleysa rjátlist af mér og ég á alveg eins von á því að þau laumi blaði í kassann til að tékka eftir nokkra daga eða vikur. Sjáum til.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Thelma Ásdísardóttir

Nú þú getur þá alltaf gripið til rótækari aðgerða ef Fbl fer að ryðjast ofaní póstkassann þinn á nýjan leik.  Ég keypti mér þessa fínu vatnsbyssu á Vopnafirði...þú vilt kannski fá hana lánaða?

Thelma Ásdísardóttir, 4.6.2007 kl. 19:05

2 Smámynd: Halldóra Halldórsdóttir

Takk - ef til kemur fæ ég hana lánaða.

Halldóra Halldórsdóttir, 4.6.2007 kl. 19:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband