Skondið

Er ekki lífið skondið. Ég hef eytt tíma og orðum í að óskapast út af fríblöðum sem ég hef haft megnustu leiðindi af því að ég hef ekki viljað fá þau bara til að hafa fyrir því að koma þeim fyrir kattarnef. Allt í einu stend ég frammi fyrir því að mig vantar þau einmitt til að setja í botninn á fuglabúrinu - og nú eru þau hætt að koma. Ekki eitt einasta fríblað síðan ég fékk mér fugl og búr. Nú bíð ég spennt eftir hvað gerist - ef baráttan gegn fríblöðunum er unnin verð ég sennilega að gerast áskrifandi að helgarMogganum til að eiga efni í botninn á búrinu.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðbjörg Jónsdóttir

Sammála því að þetta er skondið ! Núna ætlar frúin að kaupa Moggann svo at Tumi litli geti skitið á hann, hí,hí.

Guðbjörg Jónsdóttir, 29.3.2008 kl. 21:23

2 identicon

ha ha ha ha ha

día (IP-tala skráð) 29.3.2008 kl. 22:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband