Fyrirsjáanleg

Hlustaði á Andrés Magnússon lækni og fleiri í Silfrinu áðan. Nú er annað hljóð í strokknum heldur en fyrir hálfu ári síðan. Þá var íslendingum allt mögulegt - allir að verða millar og allt á uppleið. Nú er fiskurinn farinn og bankarnir kannski líka og við horfumst í augu við þá okurvexti sem við búum við. Er þetta ekki alltaf sama sagan hjá okkur - annað hvort eru þvílík uppgrip í þessu þjóðfélagi eða allt er á leiðinni á hausinn.

Satt að segja fannst mér þessar fregnir af ofurútrásinni alltaf varhugaverðar með það í huga að þjóðarsálin virðist vera haldin sterkum maníu - depressívum einkennum. Það sem fer upp, það mun koma niður aftur með skelli. Nú er best að undirbúa sig undir skellinn.

"A banker is a fellow who lends you his umbrella when the sun is shining, but wants it back the minute it begins to rain."
Mark Twain (1835 - 1910)

Eftirfarandi er athyglisvert í ljósi þess sem er að gerast í Ameríku:
"I believe that banking institutions are more dangerous to our liberties than standing armies. If the American people ever allow private banks to control the issue of their currency, first by inflation, then by deflation, the banks and corporations that will grow up around [the banks] will deprive the people of all property until their children wake-up homeless on the continent their fathers conquered. The issuing power should be taken from the banks and restored to the people, to whom it properly belongs."
Thomas Jefferson (1743 - 1826), Letter to the Secretary of the Treasury Albert Gallatin (1802)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Thelma Ásdísardóttir

Já alveg merkilegt hvað Íslendingar missa sig svakalega í flestu sem þeir taka sér fyrir hendur. Manía er einmitt rétta orðið. Ég vona nú samt að skellurinn verði ekki of harður. Alla vega þá held ég ekki að þetta sé besti tíminn til að taka kast með visa kortið sitt :)

Thelma Ásdísardóttir, 24.2.2008 kl. 18:18

2 Smámynd: Garún

Æi ég er bara eitthvað svo leiðinleg í mér....mig langar svo að hvísla "gott á ykkur"...EN það er ekki fallegt.

Garún, 24.2.2008 kl. 23:47

3 identicon

Garún kvikindið þitt .... ha ha,

þú ert fyndin

dia (IP-tala skráð) 24.2.2008 kl. 23:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband