Pottakarlar

Þar sem ég sat með lokuð augun í heita pottinum í dag varð ég smám saman meðvituð um samtal tveggja eldri pottakarla. Þeim lá hátt rómur - merkilegt hvað svona besservisser körlum liggur hátt rómur. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem ég hef tekið eftir því og látið það trufla slökunina. En þessir voru meðal annars að tala um viðtalið við Svandísi Svavars í Silfrinu um daginn. Jú - þeir voru sammála um að hún hafi nú staðið sig ágætlega en hún væri líka með svo sterkan ráðgjafa á bak við sig - gott ef hann væri ekki líka tengdafaðir hennar, mikill heiðursmaður. Einmitt.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

já hvað er hægt að segja....

.....annars hef ég heyrt að Davíð eigi ansi skelegga tengdó eða misminnir mig bara???

dia (IP-tala skráð) 12.11.2007 kl. 20:38

2 Smámynd: Halldóra Halldórsdóttir

Día - ég man aldrei eftir að heyra orð um skelegga, ráðagóða tengdamóður á bak við hann - eða neinn annan karl í áhrifastöðu. Reyndar fullt af bröndurum um þær - oft baneitraða brandara. Ertu ekki bráðum búin að læra? Getum við ekki gert eitthvað skemmtilegt þá?

Halldóra Halldórsdóttir, 14.11.2007 kl. 19:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband