Ofvirkt samfélag

Á vefriti Egils Helgasonar veltir hann því upp hvort íslenska hagkerfið sé ofvirkt;
"Til að einfalda þetta aðeins má segja að spurningin sé hvort íslenska hagkerfið sé ofvirkt – og verði það áfram. Það er að minnsta kosti vandséð að til sé 300 þúsund manna hópur fólks í heiminum sem hefur jafnmikil umsvif".

Þýsk vinkona mín sem hefur verið með annan fótinn hér í tuttugu ár og hefur fylgst með íslendingum og okkar samfélagi hlær mikið þegar ég er að segja henni fréttir héðan - hún mundi svara þessu játandi. Ekki aðeins hagkerfið heldur er allt tempóið hér með ólíkindum. Ég var að segja henni að leitin eftir smiði sé afar erfið - það séu allir smiðir svo uppteknir núna. Hún skellti uppúr og sagðist hafa heyrt þetta frá íslendingum í tuttugu ár.

Einkadóttirin HF, (sem er eina Háeffið sem ég á einhvern hlut í) og sem er að störfum á annarri lítilli eyju með svipuðum íbúafjölda, tekur líka undir þetta. Samanburðurinn á þessum eyjaskeggjum er áhugaverður - þar sem hún starfar gerist ekkert! (hennar reynsla). Það fer ómæld vinna í að virkja fólk og ýta á eftir verkefnum - vikum og mánuðum saman með endalausum samtölum, símtölum og tölvupóstum en engum árangi. Hér er virknin svo mikil og atburðarásin svo hröð að ef ég lít af fréttunum í nokkra daga er komið allt annað landslag og ég búin að missa af einhverju voðalega mikilvægu í samfélaginu.

Nothing is more common than for great thieves to ride in triumph when small ones are punished.
Seneca B.C. 3-65 A.D.

Democracy is a device that insures we shall be governed no better than we deserve.
George Bernard Shaw


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Thelma Ásdísardóttir

Sammála þér, það eru svaka læti og sprikl alltaf hreint í okkur Íslendingum. Góð færsla hjá þér

Thelma Ásdísardóttir, 14.10.2007 kl. 12:06

2 Smámynd: Guðbjörg Jónsdóttir

Gaman ad fylgjast med blogginu tinu hedan fra Kolkata. Her er folk ekki mikid ad flyta ser. Eg er buin ad laera ad 5 minutur er ca 30 minutur og 2 klst. heil vika. Eg virkilega legg mig fram um ad skilja tetta. Kona hringir nidur i mottoku og bidur um handklaedi og tad telst vera gott ad fa tad 2 dogum sidar. Hugsanlega slaevir hitinn vitund folks. Eg held afram ad fylgjast med ter, Dora min!

Guðbjörg Jónsdóttir, 17.10.2007 kl. 10:21

3 Smámynd: Halldóra Halldórsdóttir

Alveg líklegt að loftslagið hafi áhrif á hegðun fólks og þar með samfélagið - við höfum í margar aldir orðið að vinna okkur til hita.

Halldóra Halldórsdóttir, 17.10.2007 kl. 17:03

4 Smámynd: Álfhóll

Dóra mín.  Mér henta ekki þessi skrif þín um samfélag þar sem hlutirnir gerast. Kemur eitthvað óþægilega nálægt þínum nánustu samstarfskonum - Bestu kveðjur. Konan í næsta herbergi.

Álfhóll, 23.10.2007 kl. 14:40

5 Smámynd: Halldóra Halldórsdóttir

Oó!  Skrifa þetta á aldurinn (alltaf gott skjól) sem færist óðum yfir suma í næstu herbergjum við þig Guðrún.

Halldóra Halldórsdóttir, 23.10.2007 kl. 14:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband