A1988 - N1 - A4 ?

Hvað á þetta að þýða? Fyrir utan að vekja grun um kennitölubrask þá minna þessar nafngiftir óþægilega á tímana þegar tískan var "Group". Asnalegt og gerir ekkert annað en tæta í sundur samfélagsminnið. Jafn hallærislegt og þegar Íslandsbanki varð að eldrauðum Glitni sem yfirtók öll mannamót um tíma og snáfaðist síðan  í Íslandsbanki aftur með skottið á milli lappanna.

Svona stælar gera ekkert til að byggja upp tiltrú á fyrirtæki. 


mbl.is Nafni Eimskips verði breytt í A1988
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sammála.

Elvar (IP-tala skráð) 1.9.2009 kl. 15:25

2 identicon

bölvud vitleysa, ekki gleyma svo NBI, gamla Landsbankaheitid er ónýtt, af hverju er fólk svona vitlaust?

óli (IP-tala skráð) 1.9.2009 kl. 19:27

3 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Sælir.

Björgólfur lagði niður óskabarn þjóðarinnar með formlegum hætti á sínum tíma, þ.e.a.s. það félag sem var stofnað 1914. Eigur þess runnu síðan ínn í annað eins og finna má í fyritækjaskránni hjá RSK. Þannig er þetta ekki óskabarn þjóðarinnar svonefnt. Þetta er hann sagður hafa gert í hefndarskyni vegna Hafskipamálsins hans þar sem hann var sakfelldur fyrir ýmis lögbrot, en kenndi Eimskip um síðar.

660288-1049Hlutafélagið Eimskipafélag Íslands
Avion Group hf, Flugfélagið Atlanta hf, Flugfélagið Atlanta ehf
  
Rek.árNafnSkiladagsetningNr. ársreiknings
2008Hlutafélagið Eimskipafélag ÍslandsÁrsreikningi ekki skilað
2007Hlutafélagið Eimskipafélag Íslands9. apríl 200873421SR
2006Hlutafélagið Eimskipafélag Íslands12. febrúar 200887220AR
2005Avion Group hf14. febrúar 200794958AR
2004Avion Group hf2. febrúar 200698057SR
2003Avion Group hf1. nóvember 2004140365AR
2002Flugfélagið Atlanta hf17. nóvember 2003811451 
2001Flugfélagið Atlanta hf21. nóvember 2002710286 
2000Flugfélagið Atlanta hf23. nóvember 2001607318 
1999Flugfélagið Atlanta ehf27. nóvember 2000507634 
1998Flugfélagið Atlanta ehf22. desember 1999408390 
1997Flugfélagið Atlanta ehf9. desember 1998306217 
1996Flugfélagið Atlanta ehf16. október 1997204895 
1995Flugfélagið Atlanta hf16. október 1997105366

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 2.9.2009 kl. 15:05

4 Smámynd: Garún

Já einmitt...fáránlegt.  Ég skal setja þúsund kall í pottinn að önnur fyrirtæki munu koma með eitthvað jafnfáránlegt bráðum.   Reyndar er ég að spá í að breyta nafninu á mínu fyrirtæki í ES1984 bara svona til að vera með.  Það heitir Eldar og Skuggi ehf og kannski er það bara jafn úrelt og Skyr.is  æi ég veit það ekki, stundum finnst mér fullorðið fólk í jakkafötum svo glatað!

Garún, 6.9.2009 kl. 20:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband